Greencoat þakklæðningar
Hvort sem þú ert að byggja nýtt hús eða endurnýja þá er Greencoat klæðning rétta valið. Við höfum höfum klætt íslensk hús í yfir 35 ár og erum þekktir fyrir góða endingu, hagkvæm verð og stuttan afgreiðslutíma.
Greencoat er litað stál framleitt af SSAB fyrir sérstaklega krefjandi aðstæður. Klæðningin er varin af húð unnin úr sænskri repjuolíu og hefur gengið í gegnum áratugalangt þróunarferli til að tryggja sem bestu endingu.
Greencoat: Klæðning sem þolir íslenskar aðstæður
HVAÐ ER GREENCOAT®?
Greencoat® er umhverfisvænt litað stál framleitt af SSAB sem hefur verið þróað og prófað til að þola þær sérstaklega erfiðu aðstæður sem við þekkjum svo vel hér á landi.
GREENCOAT: BESTA VÖRNIN GEGN ÚTFJÓLUBLÁRRI GEISLUN
Útfjólublá geislun aflitar og eyðileggur bæði húðun og stál með tíð og tíma. Greencoat er með hæstu mögulegu einkunn í þoli gagnvart slíkri geislun.
Einkunn 5/5 RcuV
GREENCOAT: HÆSTA MÖGULEGA EINKUNN Í TÆRINGARÞOLI
Veður, selta, snjór og aðrir umhverfisþættir hafa tærandi eiginleika. Greencoat er með hæstu mögulegu einkunn í tæringarþoli
Einkunn: 5/5 RC
Greencoat Formgerðir