Klassíska báruformið kallast 18/76, sem þýðir að hæðin á bárunni er 18mm og breidd hverrar báru er 76 mm. Bárujárnið er bæði hægt að nota til klæðningar á loft og veggi. Bæði innanhúss og utanhúss. Klæðningin er varin af húð unnin úr sænskri repjuolíu og hefur gengið í gegnum áratugalangt þróunarferli til að tryggja sem bestu endingu.
Greencoat er umhverfisvænt litað stál framleitt af SSAB sem hefur verið þróað og prófað til að þola þær sérstaklega erfiðu aðstæður sem við þekkjum svo vel hér á landi.
Greencoat er með hæstu mögulegu einkunn í þoli gagnvart útfjólublárri geislun.
Greencoat er með hæstu mögulegu einkunn í tæringarþoli fyrir seltu, snjó og öðrum umhverfisþáttum sem hafa tærandi eiginleika.
Bára 18/76
Efni: Stál
Heildar breidd: 1120mm
Lögð breidd:
Þykkt: 0,45/0,5/0,6
Hæð prófíls: 18mm
Breidd prófils: 76mm
Tegund: Vegg- og þakklæðning
Þegar klæða skal veggi er hægt að nota báruplötur bæði sem lárétta og lóðrétta klæðningu (standandi eða liggjandi).
Þegar járn er fest á þak er mælt með að nota 12-14 festingar (þaksaum eða skrúfur) á hvern fermetra. Ef bárujárn er notað til að klæða á veggi eru notaðar 10-12 festingar á fermetra. Bárujárnið er framleitt í verksmiðju Weckman Steel í Finnlandi.
Linkar á pdf skjöl með leiðbeiningum fyrir uppsetningu
Weckman Steel
Fjölskyldufyrirtæki sem hefur framleitt stálgrindarhús, stálklæðningar og vinnuvélavagna í yfir 60 ár og hefur verið samstarfsaðili H. Hauksson frá stofnun fyrirtækisins. Vörur fyrirtækisins hafa skapað sér nafn hér á landi fyrir gæði sín, þol og áreiðanleika.