Iðnaðarhurðir frá Wisniowski
H. Hauksson flytur inn iðnaðarhurðar frá Wisniowski, einum stærsta framleiðanda glugga- og hurðabúnaðar í Evrópu. Hurðarnar eru sér smíðaðar eftir máli hverju sinni og henta vel fyrir flest húsnæði og starfsemi enda bæði hagkvæmar og fjölbreyttar. Þær eru fáanlegar í miklu úrvali hvað varðar útlit, útfærslur brauta, búnað og stærð.
Sérsmíðaðar fyrir íslenskar aðstæður
Wisniowski iðnaðarhurðirnar hafa staðið af sér íslenskar aðstæður í áratugi, við saltríkar og stormasamar aðstæður þar sem kröfur eru gerðar um gott aðgengi, styrk, öryggi og áreiðanleika. Hurðarnar eru með 40mm og 60mm þykkum polýúreþan kjarna, sem gerður er úr mörgum samþjöppuðum lögum. Þessi gerð af einangrun tryggir mikla fyllingu og þar með mjög gott einangrunargildi.
Ryðfrír og endingargóður búnaður
Wisniowski hurðarnar hentar í jafn vel í bílastæðahús og bílaþvottastöðvar, fiskvinnslur, hlöður og verkstæði, hvar þar sem þú vilt geta treyst hurðinni til lengdar. Hægt er að fá íhluti að hluta eða öllu leyti úr ryðfríu stáli sem tryggir betri endingu í röku eða tærandi umhverfi s.s. í fjósum, hesthúsum eða fiskvinnsluhúsum.
Litir og aukahlutir fyrir fjölbreyttar aðstæður
Hægt er að fá iðnaðarhurðir í 12 staðallitum. Þá er einnig hægt að velja flesta aðra liti að eigin vali gegn lágu aukagjaldi. Hægt er að fá gönguhurðir, dyraumbúnað og glugga úr sömu efnum, sömu áferð og litum og iðnaðarhurðirnar til að samræma útlit enn frekar. Hægt er að útbúa Wisniowski iðnaðarhurðir með gluggum, gönguhurðum, með og án rafmagnsopnara, fjarstýringum, blikkljós o.fl. Hurðirnar eru að sjálfsögðu útbúnar tilskyldum öryggisbúnaði auk klemmuvarnar.
Gluggar og gönguhurðir
Hægt er að fá gönguhurðir, dyraumbúnað og glugga úr sömu efnum, sömu áferð og litum og iðnaðarhurðirnar til að samræma útlit í húsinu enn frekar.