Snjóskóflur frá Finnlandi með vökvastýrðum vængjum sem gerir hana tilvalda til að ryðja snjó bæði í þröngum og stórum svæðum. Mögulegt er að stýra vængjum saman og í sitthvoru lagi. Þar sem skóflan og vængir fylgja yfirborðinu slitna blöðin jafnt sem lengir líftíma þeirra.
Vélsmiðjan HW var stofnuð árið 2001 og sérhæfir sig í framleiðslu á skóflum og fylgihlutum fyrir stærri vinnuvélar. Öll hönnun og framleiðsla fer fram í höfuðstöðvum og verksmiðju fyrirtækisins í Honkajoki, Finnlandi sem tryggir gæði varanna.