Sterkir brettagafflar úr styrktu heavy duty stáli. Lyfting, hleðsla, stöflun – lyftaragafflarnir frá FK Machinery aðstoða þig við að koma miklu í verk á skemmri tíma. Lyftaragafflarnir eru sérlega traustir og afar endingargóðir, því FK Machinery leggur mikla áherslu á sterka byggingu og nota til þess bestu fáanlegu hráefnin við smíðarnar.
Burðargeta 2.500 kg
Stærð á göfflum: 1200 x 100 x 40mm
Stærð á ramma: 120cm
Þyngd: 185 kg
Ásoðnar Euro festingar
Mögulegt er að panta allar festingar á tækin frá FK Machinery.
Verð:
Kr. 152.500 án vsk
Kr. 189.000 með vsk
Camion
Finnska fyrirtækið Camion var stofnað af bændunum Yrjö, Ismo og Vesa-Matti Keskimäki árið 1993 þegar þeir byrjuðu að smíða og selja landbúnaðartæki til nágranna sinna í sveitinni. Næsta kynslóð er tekin við stjórnartaumunum en fyrirtækið einbeitir sér enn að sölu til bænda og er í stöðugri vöruþróun í samvinnu við viðskiptavini sína og þær krefjandi aðstæður sem bændur í Finnlandi vinna við.