Malarvagnar
Weckman Steel

Weckman WS 110DG – HARDOX

Sturtuvagn með 11 tonna burðargetu.

Sturtuvagnarnir frá Weckman Steel eru mest seldu sturtuvagnarnir á Íslandi. Vagnarnir auka skilvirkni við framleiðslu og flutninga og henta vel fyrir bændur, verktaka, sveitarfélög og fleiri aðila sem þurfa á varanlegum, öruggum og þægilegum vögnum að halda. Sterkur og hár undirvagn gerir Weckman vagnana auðvelda að keyra yfir erfiðustu skilyrði. Langt beisli tryggir að jafn auðvelt er að stjórna eins öxuls og tveggja öxula vögnunum. Weckman sturtuvagnarnir eru gríðarlega sterkbyggðir og þekktir fyrir góða endingu við íslenskar aðstæður.

Leyfileg heildarþyngd 13.700 kg

Eigin þyngd m/ standard skjólborðum 2.700 kg

Eigin þyngd m/ upphækkuðum skjólborðum 3.100 kg

Burðargeta/hlassþyngd 11.000 kg

Innra mál skúffu 404 x 231 cm

Ytra mál skúffu 417 x 243 cm

Dráttarbeisli 150 cm

Hæð með standard skjólborðum 80 cm

Hæð með upphækkuðum skjólborðum 155 cm

Rúmmál með standard skjólborðum 7,5 m³

Rúmmál með upphækkuðum skjólborðum 16 m³

Efni í botni 6mm HARDOX 450

Efni í hliðum 4mm HARDOX 450

Dekk 520/50-17

Vökvabremsur Fjórum hjólum

Sturtuhorn 52

Verð:

kr. 2.750.000 án vsk

kr. 3.410.000 með vsk

Staðalbúnaður
Aukabúnaður

Weckman Steel

Fjölskyldufyrirtæki sem hefur framleitt stálgrindarhús, stálklæðningar og vinnuvélavagna í yfir 60 ár og hefur verið samstarfsaðili H. Hauksson frá stofnun fyrirtækisins. Vörur fyrirtækisins hafa skapað sér nafn hér á landi fyrir gæði sín, þol og áreiðanleika.