Sturtuvagn með 11 tonna burðargetu. Sturtuvagnarnir frá Weckman Steel eru mest seldu sturtuvagnarnir á Íslandi. Vagnarnir auka skilvirkni við framleiðslu og flutninga og henta vel fyrir bændur, verktaka, sveitarfélög og fleiri aðila sem þurfa á varanlegum, öruggum og þægilegum vögnum að halda. Sterkur og hár undirvagn gerir Weckman vagnana auðvelda að keyra yfir erfiðustu skilyrði. Langt beisli tryggir að jafn auðvelt er að stjórna eins öxuls og tveggja öxula vögnunum. Weckman sturtuvagnarnir eru gríðarlega sterkbyggðir og þekktir fyrir góða endingu við íslenskar aðstæður.
Leyfileg heildarþyngd 13.640
Eigin þyngd m/ standard skjólborðum 2.640 kg
Burðargeta/Hlassþyngd 11.000 kg
Innra mál 404 x 231 cm
Ytra mál 417 x 243 cm
Dráttarbeisli 150 cm
Hæð á standard skjólborðum 80 cm
Hæð á upphækkuðum skjólborðum 155 cm
Rúmmál með standard skjólborðum 7,5 m³
Rúmmál með upphækkuðum skjólborðum 16 m³
Dekk:
Vökvabremsur Fjórum hjólum
Sturtuhorn 51 gráður
Weckman Steel
Fjölskyldufyrirtæki sem hefur framleitt stálgrindarhús, stálklæðningar og vinnuvélavagna í yfir 60 ár og hefur verið samstarfsaðili H. Hauksson frá stofnun fyrirtækisins. Vörur fyrirtækisins hafa skapað sér nafn hér á landi fyrir gæði sín, þol og áreiðanleika.