5 – 10m gripaflutningavagnar með sérstökum vökvahásingum sem hægt er að lækka niður til þess að auðvelda gripunum að stíga upp í vagninn.
Mögulegt er að velja úr ýmsum innréttingum fyrir tengivagnana – innri skilveggi með 2 til 5 hurðum, hliðarhurðir vinstra eða hægra megin á tengivagninum, epoxy gólfefni með hálkuvörn og 4 cm gólfbil – til að auðvelda þrif.
Hægt er að bæta við auka hæð í vagninn fyrir kindur og geitur. Hæðin tvöfaldar flutningsgetu vagnsins en öll hönnun og smíði vagnsins er gerð til að hámarka ró hjá dýrunum og þeim líði vel. Auka hæðin er einnig vökvaknúinn. Botninn er úr ryðfríu stáli sem tryggir endingu.
| LENGD | HÆÐ | BREIDD | BURÐARGETA | BREMSUR | DEKK |
| 5100mm | 2160mm | 2550mm | 5 tonn | Loft eða vökabremsur | 400/60-15,5 |
| 6350mm | 2160mm | 2550mm | 6 tonn | Loft eða vökabremsur | 400/60-15,5 / 400/60-22,5 |
| 7600mm | 2160mm | 2550mm | 7 tonn | Loft eða vökabremsur | 400/60-15,5 / 520/50-17 |
| 8850mm | 2160mm | 2550mm | 8 tonn | Loft eða vökabremsur | 520/50-17 |
| 10100mm | 2160mm | 2550mm | 8,9 tonn | Loft eða vökabremsur | 520/50-17 |
Dinapolis
Í yfir 30 ár hefur Dinapolis þjónustað landbúnaðinn. Í dag selur fyrirtækið vélar og tæki um allan heim. Þeir sérhæfa sig í að hanna lausnir sem mæta þörfum hvers viðskiptavinar.